BLOGGIÐ

15 júní 2004

WTF !?

Lag af nýja disk Prodigy hefur lekið út og þú lesandi góður getur hlustað á það með því að smella HÉRNA. Ég held að titill þessa innslags segi allt um að það sem braust um í hausnum á mér á meðan ég hlustaði á lagið.




03 júní 2004

Metallica - Some Kind of Monster


Trailer fyrir nýju Metallica heimildarmyndina má nálgast HÉR. Ekkert lítið sem ég hlakka til að sé þessa "jónu" í bíó.



02 júní 2004

Ólafur Ragnar er djarfur


Þá er bara að kjósa á móti þessari árans vitleysu.



Spennan er rafmögnuð


Fjölmiðlafundur hjá forsetanum eftir u.þ.b. hálftíma vegna fjölmiðlafrumvarpsins. Trúi í raun ekki öðru en að hann samþykki það og dembi þessum ósóma yfir íslensku þjóðina. Það verður því eflaust spennandi að sjá hvort að spá blaðamanns Frjálsrar verslunar reynist sönn, en hann náði að leiða það út úr efnahagsreikningi Norðurljósa að þau myndu eflaust lýsa yfir gjaldþroti þar sem lausafjárstaða þess verði afar bágborin þar sem mikið af erlendum langtímaskuldum yrðu gjaldfelldar vegna þessarar lagasetningar.

En ef þessum óbjóði verður skotið til þjóðarinnar þá held ég nú að það verði barasta að taka ofan fyrir Ólafi Ragnari og mun ég persónulega setja á mig hatt til að geta gert það.